top of page
Search

Fyrsti áfangi í LED-væðingu á Espiflöt

  • Dec 17, 2025
  • 1 min read

Við á Espiflöt sóttum um styrk í vor hjá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu til LED væðingar. Kostnaðurinn við framkvæmdina eru rúmar 26 miljónir króna.

Fengum styrk sem greiðir 40% af framkvæmdinni. Tilgandurinn er að nýta auðlindir okkar á sem bestan hátt og minnka þar með raforkunotkun. Settum upp 220 LED ljós sem komu í stað eldri og orkufrekari ljósa. Markmiðið er að minnka raforkunotkun um 500.000-600.000 kwh á ári. Það er sparnaður upp á 5-6 miljónir árlega í raforkukostnaði. Nú er mánuður liðinn frá uppsetningu, dýrmæt reynsla komin og plönturnar eru að fíla þetta í botn. Bestu þakkir til Jóhanns Páls og hans ráðuneytis fyrir að veita garðyrkjunni tækifæri til að taka stór og ákveðin skref inn í framtíðina. Sem og Árvirkjanum sem sá um uppsetningu á búnaðinum.



 
 
 

Comments


bottom of page