Upphafið – 1948
Grunnur Espiflatar var lagður þann 1. maí 1948, þegar hjónin Eiríkur Sæland og Hulda Sæland fluttu búferlum úr Hafnarfirði og settust að í Reykholti með þá framtíðarsýn að byggja upp garðyrkjubýli frá grunni. Eiríkur hafði útskrifast úr Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1943 og störfuðu þau hjón síðan á garðyrkjustöðinni Stóra-Fljóti þar sem þau hófu jafnframt undirbúning að eigin rekstri. Þau keyptu land, byggðu upp íbúðarhús og fyrstu gróðurhúsin og tryggðu sér aðgang að jarðhita úr Reykholtshveri. Landslagsarkitektinn Jón H. Björnsson, síðar kenndur við Alaska, teiknaði lóðina og frumskipulag ræktunarinnar. Upphaflega bar býlið nafnið Sjónarhóll, en árið 1958 var nafninu breytt í Espiflöt.

Fyrstu áratugirnir
Fram undir 1965 var ræktunin að mestu grænmeti, en á árunum 1965–1977 var starfsemin blönduð, bæði með grænmeti og blóm og var gróðurhúsaflötur þá komin upp í um 1.300 m². Blönduð ræktun reyndist þó flókin, m.a. vegna ólíkrar meðhöndlunar og mismunandi varnarefna, og því fór smám saman að birtast áherslubreyting sem síðar átti eftir að marka reksturinn til framtíðar.

Önnur kynslóð 1977–1998
Árið 1977 tóku synir Eiríks og Huldu, Stígur og Sveinn Sæland, ásamt eiginkonum sínum Aðalbjörgu og Áslaugu, við rekstrinum og stofnuðu með foreldrunum félagsbúið Espiflöt sf.
Ákveðið var að sérhæfa ræktunina í afskornum blómum, sem skilaði einfaldari og hagkvæmari framleiðslu með betri gæðum. Á komandi árum var stöðin stækkuð og tækjabúnaður endurnýjaður. Jafnframt var tekið á leigu gróðurhúsarými á Friðheimum og síðar Birkilundi til að mæta aukinni framleiðsluþörf.
Árið 1987 stofnuðu Stígur og Aðalbjörg eigin garðyrkjustöð á lóð Espiflatar og hurfu úr sameiginlegum rekstri.
Eiríkur og Hulda létu svo af störfum árið 1998 eftir 50 ára búsetu og brautryðjendastarf og fluttu á Selfoss. Eiríkur lést árið 2002. Hulda lést svo árið 2018.
Espiflöt ehf. 1998–2013
Frá 1998 tóku Sveinn A. Sæland og Áslaug Sveinbjarnardóttir við rekstrinum undir nafninu Espiflöt ehf. Bæði eru garðyrkjufræðingar að mennt og Sveinn með aukið nám í rekstrarfræðum frá garðyrkjuskólanum Söhús í Danmörku. Þau héldu áfram að efla framleiðsluna með nýrri tækni, uppfærðum gróðurhúsum og stöðugum umbótum á ræktunaraðferðum. Þessi ár einkenndust af vexti, aukinni framleiðni og styrkingu fyrirtækisins sem burðarás í íslenskri blómarækt.
Þriðja kynslóð frá 2013
Árið 2013 hófust kynslóðaskipti þegar sonur Sveins og Áslaugar, Axel Sæland, gekk inn í reksturinn ásamt eiginkonu sinni Heiðu Pálrúnu Leifsdóttur. Axel, sem síðar lauk garðyrkjunámi, og Heiða, hjúkrunarfræðingur, tóku hratt til starfa við bæði daglega framleiðslu og stjórn fyrirtækisins. Á þessum árum varð Espiflöt að hátæknilegri blómaræktunarstöð þar sem stýring á birtu, hita, rakastigi, vökvun og loftgæðum er að stærstum hluta tölvustýrð. Gróðurhúsaflötur undir ljósi jókst verulega og framleiðsla náði upp í milljónir afskorinna blóma á ári. Hafa börn þeirra, Auðunn Torfi, Lilja Björk, Adda Sóley og Áki Hlynur, oft tekið þátt í störfum bæði eftir aldri og getu, rétt eins og gert hefur verið á staðnum í yfir sjö áratugi.


Verðlaun og viðurkenningar
Espiflöt hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir fagleg vinnubrögð og metnaðarfullan rekstur. Árið 2020 hlaut fyrirtækið Landbúnaðarverðlaunin, sem staðfestir mikilvægi fyrirtækisins í íslenskum landbúnaði og garðyrkju.



